Nöfn hjónanna sem létust á Grindavíkurvegi

Þau sem létust í bílslysi á Grindavíkurvegi á föstudag voru hjón á sjötugsaldri.

Þau hétu Frímann Grímsson, fæddur 1958, og Margrét Á. Hrafnsdóttir, fædd 1960. Voru þau búsett í Sandgerði.

Þau láta eftir sig tvö uppkomin börn, tengdabörn og barnabörn, að því er segir á vef ríkisútvarpsins.

Slysið varð á veginum skömmu fyrir hádegi á föstudag, þegar tvö ökutæki lentu saman á veginum í hálku. Hjónin voru úrskurðuð látin á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert