Rannsókn lokið á banaslysi átta ára drengs

Flaggað í hálfa stöng hjá íþróttamiðstöð Hauka í kjölfar slyssins.
Flaggað í hálfa stöng hjá íþróttamiðstöð Hauka í kjölfar slyssins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rannsókn á banaslysi 8 ára drengs sem átti sér stað á Ásvöllum í Hafnarfirði er lokið. Slysið gerðist þann 30. október á síðasta ári.

RÚV greinir frá.

Drengurinn sem lést var á reiðhjóli á bíla­stæði á milli Ásvalla­laug­ar og íþrótta­húss Hauka þegar hann varð fyr­ir steypu­bíl.

Ekki liggur fyrir hvort að ökumaður steypubílsins sé með stöðu sakbornings í málinu. Rúv greinir svo frá að lögreglan bíði nú eftir gögnum til að geta sent málið til ákærusviðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert