Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir æpandi þögn vera frá fyrirtækjum innan Samtaka atvinnulífsins (SA) í sambandi við það að halda aftur af verðhækkunum til að ná fram þjóðarsátt í kjaraviðræðum.
Í dag fundaði breiðfylking stéttarfélaga með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og segir Vilhjálmur í Facebook-færslu að á þeim fundi hafi komið fram skýr vilji sveitarfélaga til að endurskoða gjaldskrár sínar.
„Ég skal fúslega viðurkenna að ég sakna innilega að heyra ekki eitt einasta orð frá aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins um að þau ætli að styðja við nýja þjóðarsátt með því að stilla verðlagshækkunum í hóf.
Þögn fyrirtækja innan Samtaka atvinnulífsins er æpandi en það er morgunljóst að ekki er hægt að gera kröfu á launafólk, sveitarfélög og ríkið að skapa forsendur fyrir lækkun verðbólgu og vöxtum ef fyrirtæki sem eiga aðild að SA ætla sér ekki að taka þátt í að stilla sinni verðlagningu í hóf eins og kostur er.“
Vilhjálmur skorar á fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins að svara kalli breiðfylkingarinnar.
„Ég skora á fyrirtæki innan raða Samtaka atvinnulífsins að svara kallinu og segja hátt og skýrt „við ætlum að vera með og stilla verðhækkunum í hóf til styðja við nýja þjóðarsátt“,“ skrifar Vilhjálmur.