„Þarna var ég hræddur“

Karl Garðarsson var ásamt úkraínskri eiginkonu sinni í Kænugarði fyrr í mánuðinum, þegar Rússar gerðu mestu loftárás til þessa í stríðinu við Úkraínu.

Þau hjónin komu til borgarinnar á nýársdag og gistu í íbúð sinni en loftvarnaflautur voru farnar að væla um alla borg þegar þau gengu til náða. Kona Karls vakti hann um nóttina og vildi að þau færu í loftvarnabyrgi í kjallara fjölbýlishússins.

Karl þráaðist við og sagðist ætla að sofa aðeins lengur í íbúðinni. Kona hans fór niður í byrgið. Síðar um nóttina hrökk Karl upp af svefni við miklar sprengingar og lék húsið á reiðiskjálfi undan eldflaugaárás rússneska hersins.

Logandi eldur og brenndir bílar eftir loftárás Rússa á Kænugarð …
Logandi eldur og brenndir bílar eftir loftárás Rússa á Kænugarð í byrjun janúar. Karl Garðarsson lýsir upplifun sinni af árásinni og andrúmsloftinu á meðal Úkraínumanna. Samsett mynd

Tugir létust í árásinni

„Já, þarna var ég hræddur,“ svarar Karl, spurður hvernig honum hafi liðið á þeim tímapunkti. Hann komst niður í loftvarnabyrgið og héldu þau til í því í rúma sjö klukkutíma ásamt á annað hundrað öðrum íbúum. „Ég fór upp í skamma stund tvisvar um nóttina til að anda að mér fersku lofti en fór svo strax niður aftur,“ segir Karl.

Tugir almennra borgara létust í borginni um nóttina í árásinni og miklar skemmdir urðu á byggingum víða um borgina.

Karl er gestur Dagmála í dag og segir hann að þrátt fyrir hörmungarnar sé ótrúlegt hvað fólk sé fljótt að venjast þessum hræðilegum aðstæðum. Þannig voru verslanir opnar strax eftir að loftárásunum lauk og lífið fór í sinn vanagang eins og það getur orðið við slíkar aðstæður.

Utanríkisráðherrar Úkraínu og Japans í sprengjubyrgi í Kænugarði á sunnudag.
Utanríkisráðherrar Úkraínu og Japans í sprengjubyrgi í Kænugarði á sunnudag. AFP

Mikill munur á andlegri líðan þjóðarinnar

Karl fer yfir stöðuna í landinu eftir að hafa dvalið þar yfir jól og áramót. Þetta eru önnur jól þeirra hjóna í landinu í því heiftarlega stríði sem þar geisar. Hann segist finna mikinn mun á andlegri líðan þjóðarinnar sem hefur búið við þetta ógnarástand í bráðum tvö ár.

Allar fjölskyldur hafa upplifað missi og heil kynslóð ungra karlmanna er að verða horfin. Mannfallið er gríðarlegt á báða bóga án þess að Karl þori að treysta opinberum tölum frá stríðsaðilum.

Karl Garðsson deilir upplifun sinni í Úkraínu, yfir jól og áramót með áhorfendum og hlustendum Dagmála. Karl og fjölskylda komu til Íslands í fyrradag eftir langt og strangt ferðalag.

Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert