Vilja reisa hús og hótel í miðri laxveiðiá

„Þetta er skemmtileg hugmynd en hún er enn bara á frumstigi,“ segir Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri í Rangárþingi ytra.

Sveitarstjórn hefur samþykkt að gerðar verði breytingar á landnotkun í aðalskipulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar í Gaddstaðaeyju í Ytri-Rangá við Hellu. Eyjan er í eigu hjónanna Ólafs Einarssonar og Steinunnar Birnu Svavarsdóttur sem kennd eru við fyrirtækið Þjótandi.

Þau hafa hug á að íbúðabyggð fyrir allt að 12 einbýlishús rísi norðan til á eyjunni en sunnanmegin verði byggt hótel fyrir allt að 200 gesti auk útivistarsvæðis. Hótelinu fylgi afþreying á borð við baðlón.

Málið var tekið fyrir í skipulags- og umferðarnefnd sveitarfélagsins í liðinni viku og þar komu fram ýmsar athugasemdir. Jón sveitarstjóri segir að næsta skref eigenda sé að skoða umræddar athugasemdir og í kjölfarið að hefja vinnu við formlega skipulagstillögu.

Ítarlegri umfjöllun er að finna á síðu 11 í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert