Snorri Sturluson, verjandi Steinþórs Einarssonar sem var dæmdur í átta ára fangelsi í gær fyrir að hafa orðið Tómasi Waagfjörð að bana, segist ætla að áfrýja dómnum.
„Þessi dómur er vonbrigði og ekki í samræmi við væntingar. Þessu máli verður áfrýjað,” segir Snorri.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær.
Steinþóri er einnig gert að greiða tveimur ólögráða börnum Tómasar sex milljónir króna í miskabætur hvoru um sig og skaðabætur upp á 6,6 milljónir annars vegar og 4,4 hins vegar.
Steinþór bar fyrir sig neyðarvörn í málinu. Fór verjandi hans fram á að Steinþór yrði sýknaður af öllum ákærum.