Stjórnin ber fyrir sig trúnaðarbrest

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, mun gegna fullu starfi …
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, mun gegna fullu starfi á skrifstofu félagsins þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra og hann tekinn til starfa.

Stjórn Blaðamannafélags Íslands segir trúnaðarbrest hafa orðið á milli Hjálmars Jónssonar, framkvæmdastjóra félagsins, og stjórnar sem stjórn telur að ekki verði leyst úr.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blaðamannafélaginu.

Hjálmar hefur látið af störfum, eins og mbl.is greindi fyrst frá.

Vildi bjóða Hjálmari nýtt starf

Hjálmar hefur samkvæmt tilkynningunni starfað í rúm tuttugu ár hjá félaginu,  sem framkvæmdastjóri frá árinu 2003 en einnig sem formaður á árunum 2010-2021.

„Á undanförnum misserum hafa áherslur í starfsemi félagsins breyst og hefur stjórn unnið að endurskipulagningu á skrifstofu BÍ sem endurspeglar þessar breytingar. Hluti af fyrirhuguðum breytingum er ráðning nýs framkvæmdastjóra.

Samhliða henni vildi stjórn bjóða núverandi framkvæmdastjóra nýtt starf innan félagsins. Markmið þess var að fá inn nýtt starfsfólk, með reynslu og þekkingu sem nýttist í þau verkefni sem stjórn hefur ákveðið að ráðast í.

Um leið að tryggja að þekking og reynsla fráfarandi framkvæmdastjóra nýttist félagsmönnum, sem og stjórn og nýjum framkvæmdastjóra, þannig að tryggja mætti sem best vandaða yfirfærslu verkefna. Í því ferli hefur hins vegar orðið trúnaðarbrestur á milli stjórnar og framkvæmdastjóra sem stjórn telur að ekki verði leyst úr.“

Þakkað fyrir sitt framlag

Segir í tilkynningunni að niðurstaða stjórnar hafi orðið að ekki væri lengra komist í samstarfi hennar og framkvæmdastjóra og að nauðsynlegt væri að hann hætti störfum svo tryggja mætti viðunandi starfsskilyrði á skrifstofu félagsins.

„Stjórn BÍ þakkar Hjálmari fyrir framlag hans í þágu blaðamennsku á Íslandi og baráttu hans fyrir kjara- og réttindamálum blaðamanna. Stjórn mun á næstu dögum auglýsa eftir nýjum framkvæmdastjóra félagsins, og mun formaður gegna fullu starfi á skrifstofu félagsins þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra og hann tekinn til starfa.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert