Verkfæri fundið í sprungunni

Frá vettvangi í Grindavík fyrir skömmu.
Frá vettvangi í Grindavík fyrir skömmu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verkfæri mannsins sem leitað er að í Grindavík fannst í sprungunni sem óttast er að maðurinn hafi fallið ofan í. Þetta er fullyrt í umfjöllun Víkurfrétta.

Vinnufélagi mannsins tilkynnti um hvarf hans á ellefta tímanum en þeir voru að störfum við að fylla í sprunguna sem liggur í gegnum bæinn þegar maðurinn hvarf. 

Fjölmennt lið viðbragðsaðila kemur að leitinni sem stendur nú yfir í Grindavík.

Ekki hefur fengist staðfest að maðurinn hafi fallið ofan í sprungu en sterkar vísbendingar eru um að svo hafi verið raunin.

Fjölmennt lið viðbragðsaðila kemur að aðgerðunum.
Fjölmennt lið viðbragðsaðila kemur að aðgerðunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert