Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups í Grímsvötnum.
Þetta gerir hann í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, að því er kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Þar segir að Veðurstofa meti að hámarksrennsli verði ekki umfram 1.000 rúmmetra á sekúndu miðað við það vatnsmagn sem safnast hefur í Grímsvötnum.
Eins og mbl.is greindi fyrst frá í morgun er jökulhlaup hafið í Grímsvötnum og eldgos þar af leiðandi talið líklegt.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, sagði við mbl.is fyrr í dag að eldgos í Grímsvötnum yrði sprengigos sem myndi líklegast raska flugumferð.
Almannavarnir segja að ferðaleiðir austur af Grímsfjalli geti verið varhugaverðar vegna myndunar á sprungum og sigkötlum. Því segjast þær biðla til ferðafólks að gæta varúðar á þessu svæði.
mbl.is greindi frá því fyrr í dag að fluglitakóði yfir Grímsvötnum hefði verið hækkaður upp á gulan vegna jökulhlaupsins, sem þýðir að eldstöð sýni merki um virkni umfram venjulegt ástand.
Í morgun mældist stærsti skjálfti frá upphafi mælinga í Grímsfjalli en hann var 4,3 að stærð.
Eldgos þykir jafnvel líklegast á næstu klukkustundum eða sólarhringum, ef af því verður.