Sigurborg Ósk Haraldsdóttir hefur hafið störf hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, og mun hafa aðsetur á skrifstofu sambandsins á Stéttinni, Húsavík.
Sigurborg kemur inn í ýmis verkefni, einkum í tengslum við umhverfis- og skipulagsmál, en auk þess mun hún koma að verkefnum í tengslum við Sóknaráætlun Norðurlands eystra líkt og fjölmenningarráði Norðurlands eystra, að því er segir í tilkynningu.
Sigurborg er fædd og uppalin á Kjalarnesi en er búsett á Húsavík. Hún er með BS-gráðu í umhverfisskipulagi frá Landbúnaðarháskóla Íslands og meistaragráðu í landsslagsarkitektúr frá Arkitekta- og hönnunarskólanum í Ósló. Sigurborg hefur víðtæka reynslu af umhverfis- og skipulagsmálum, bæði sem kjörin fulltrúi og fagmanneskja.
Hún starfaði áður í borgarstjórn og var formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur og varaformaður umhverfis- og heilbrigðisráðs Reykjavíkur ásamt því að vera formaður Svæðisskipulagsnefndar Höfuðborgarsvæðisins. Sigurborg leiddi vinnu við mörg af mikilvægustu umhverfismálum samtímans, þ.á.m. endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur, mótun nýrrar aðgerðaráætlunar í loftslagsmálum, mótun nýrrar hjólreiðaáætlunar, mótun nýrrar umferðaröryggisáætlunar, undirbúning Borgarlínu og forgangsröðun vistvænna ferðamáta, segir jafnframt í tilkynningu.