Agnar Már Másson
Skjálfti af stærðinni 3,1 mældist við Bárðarbungu rétt fyrir kl. 12 í dag.
Skjálftinn mældist á um 100 metra dýpi samkvæmt gögnum frá Veðurstofu Íslands.
Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunu, segir við mbl.is að það sé afar ólíklegt að skjálftinn í Bárðarbungu tengist jarðskjálftanum sem reið yfir í Grímsfjalli í morgun en útilokar það ekki.
Skjálftinn sem mældist í Grímsfjalli var 4,3 að stærð – sá stærsti á svæðinu frá upphafi mælinga árið 1991.
Lovísa bendir á að stærri skjálftar hafi mjög oft riðið yfir í Bárðarbungu að undanförnu.