Liðsmaður Ríkis Íslams handtekinn á Akureyri

Tveimur var sleppt úr haldi.
Tveimur var sleppt úr haldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrír karlmenn voru handteknir á Akureyri í morgun. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi en sá þriðji var fluttur til Grikklands vegna upplýsinga um að hann sé liðsmaður Ríkis Íslams (ISIS).

Aðgerðir lögreglu hafa staðið yfir síðan í nóvember í samstarfi við erlend lögregluyfirvöld, þar á meðal Europol. 

Aðgerðunum telst nú lokið en rannsókn málsins er enn á viðkvæmu stigi.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra.

Komu til landsins í september

Tvær húsleitir voru framkvæmdar í kjölfar þess að mennirnir voru handteknir og lagði lögregla hald á farsíma og peninga.

Maðurinn sem var ekki sleppt úr haldi á eiginkonu og sex börn á aldrinum 6 mánaða til 16 ára og voru þau flutt til Grikklands með honum. Lenti vélin þar fyrir skömmu.

Fjölskyldan kom til Íslands í september og sótti um alþjóðlega vernd hér á landi en var synjað á þeim forsendum að þau væru með alþjóðlega vernd í Grikklandi.

„Mikilvægt þótti að tryggja öryggi og velferð fjölskyldunnar í aðgerðinni í morgun og voru því starfsmenn félagsþjónustu, barnaverndar og heilbrigðismenntað starfsfólk ásamt fjölda lögreglumanna á vettvangi,“ segir í tilkynningunni.

Ekki er hægt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert