Rafleiðni byrjuð að aukast

Gígjukvísl. Mynd úr safni.
Gígjukvísl. Mynd úr safni. Ljósmynd/Grétar Sigurðsson

Rafleiðni í Gígjukvísl er byrjuð að aukast lítillega og hefur vatnsmagn í ánni vaxið jafnt og þétt á síðustu tveimur sólarhringum.

Hefur vatnshæðin risið um rúma 70 sentimetra á þeim tíma samkvæmt mælum á brúnni við Þjóðveg 1.

Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að rafleiðni í ánni sé merki um aukið magn hlaupvatns í ánni en leiðni vatns segir til um styrk uppleystra rafhlaðinna efna og efnasambanda. 

Vatnshæðin hefur risið um 70 sentimetra.
Vatnshæðin hefur risið um 70 sentimetra. Graf/Veðurstofa Íslands
Rafleiðni hefur aukist lítillega. Hér má sjá breytingu frá 9. …
Rafleiðni hefur aukist lítillega. Hér má sjá breytingu frá 9. janúar og fram til dagsins í dag. Graf/Veðurstofa Íslands

Engin skjálftavirkni frá því í gær

Engin skjálftavirkni hefur mælst í Grímsvötnum eða hlaupfarveginum undir Skeiðárjökli síðan í gær en hlaupórói vex stöðugt á Grímsfjalli sem er merki um að rennsli sé enn að aukast úr Vötnunum.

Búist er við að jökulhlaupið nái hámarki í Grímsvötnum um eða eftir helgina og komi fram í Gígjukvísl einum til tveimur sólarhringum síðar. 

Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands, sagði í samtali við mbl.is í gær að mesta þrýstingsbreytingin yrði í eldstöðinni þegar vötnin væru við það að tæma sig. Væru þá mestar líkur á eldgosi. Gæti það gerst á næstu sólarhringum.

Á grafinu sést glögglega hvernig hlaupórói hefur vaxið síðustu daga.
Á grafinu sést glögglega hvernig hlaupórói hefur vaxið síðustu daga. Graf/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert