Nafn mannsins sem saknað er eftir vinnuslysið

mbl.is

Maðurinn sem saknað er eftir vinnuslys sem varð í Grindavík 10. janúar heitir Lúðvík Pétursson.

Lúðvík er fæddur 22. ágúst 1973. Hann á fjögur börn, tvö stjúpbörn og tvö barnabörn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

„Aðstandendur og unnusta hans vilja koma á framfæri kærum þökkum til allra viðbragðsaðila fyrir veitta aðstoð við leit hans,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert