Svo virðist sem kvika sé komin undir Grindavíkurbæ, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.
Allir viðbragðsaðilar hafa af þessum sökum verið beðnir um að yfirgefa bæinn. Þá má sjá yfirgefa bæinn á vefmyndavél mbl.is.
Þegar hafði verið fyrirskipað í skyndi að bærinn skyldi rýmdur í nótt í kjölfar stóraukinnar skjálftavirkni norður af Grindavík.
Skjálftavirknin er nær bænum en hún var fyrir eldgosið 18. desember.