Unnið er að björgun þeirra vinnuvéla sem raðað hafði verið upp við varnargarðinn norðan Grindavíkur, sem gossprungan þverar.
mbl.is greindi frá því fyrr í morgun að hraunið streymdi í átt að vinnuvélunum. Síðan hefur mátt fylgjast með því hvernig menn reyna að bjarga vélunum undan glóandi hraunánni.
Það er verið að bjarga vinnuvélunum. pic.twitter.com/qrfLn7DodE
— Birkir (@birkirh) January 14, 2024