Ráðherrar munu funda klukkan fimm í dag vegna eldgossins sem hófst í morgun.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verður á fundinum, en hún hefur síðustu daga verið erlendis. Hún er nú á leið til landsins.
Fyrir skömmu opnaðist ný gossprunga við jaðarinn á Grindavíkurbæ. Á vefmyndavélum mbl.is má sjá nálægð nýju sprungunnar við bæinn og virðast einungis nokkrir tugir metrar skilja að.