Varðskipið Þór er nú við Grindavík. Áhöfn skipsins hefur aðstoðað almannavarnir við að fá skýrari mynd af eldgosinu með drónamyndum.
Skipið var í morgun við Keflavík en um fimmleytið í morgun var tekin ákvörðun um að sigla því til Grindavíkur. Um áttaleytið var skipið komið til Grindavíkur.
Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.
„Við erum búin að vera með þyrlusveitina í viðbragðsstöðu, sem og varðskipið Þór, sem var í morgun við Keflavík og við sendum það inn til Grindavíkur til að vera til taks,“ segir Ásgeir.
„Þar er sömuleiðis dróni um borð sem er notaður, ásamt öðrum drónum, til að aðstoða samhæfingarstöð almannavarna til að gefa skýra mynd af stöðu mála. Áhöfnin er í því hlutverki, auk þess að vera til taks ef á þarf að halda.“