Eldgos braust út klukkan 7.57 að morgni sunnudagsins 14. janúar, skammt norður af Grindavík, þegar sprunga opnaðist suðaustan við Hagafell.
Greint var samstundis frá upphafi gossins á mbl.is.
Fljótt varð ljóst að sprungan þveraði varnargarða sem gerðir höfðu verið fyrir ofan bæinn. Hraun úr sprungunni hefur runnið með varnargörðunum og í vestur yfir Grindavíkurveg.
Stutt sprunga opnaðist rétt norðan byggðarinnar eftir hádegi í gær og hefur hraun úr henni þegar eyðilagt nokkur hús efst í byggðinni.
mbl.is fylgist áfram með þróun mála og færir lesendum nýjustu tíðindi: