Flytja varaaflsvél til Grindavíkur

Varaaflsvél er á leið til Grindavíkur.
Varaaflsvél er á leið til Grindavíkur. Ljósmynd/Landsnet

Landsnet er þessa stundina að flytja eina af varaaflsvélum fyrirtækisins til Grindavíkur þar sem hún verður staðsett á hafnarsvæðinu.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu Landsnets en þar segir að reyna eigi að tengja varaaflsvélina við dreifikerfi HS Veitna og ná þar með að koma hita á hús á svæðinu.

Þetta er vandasöm aðgerð en við munum fara eftir ýtrustu öryggisráðstöfunum,“ segir í færslu á Facebook-síðu Landsnets.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert