Hlaupið enn við hámark

Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls. Mynd úr …
Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls. Mynd úr safni. mbl.is/Ragnar Axelsson

Jökulhlaupið úr Grímsvötnum virðist enn vera nálægt því hámarki sem það mældist í aðfaranótt sunnudags. Ekkert er þó að frétta af mögulegu eldgosi þar í kjölfar hlaups og eiginlega engin jarðskjálftavirkni mælist þar nú. Þetta segir Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Ekki er enn hægt að útiloka að gos komi þar upp, líkt og hefur stundum gerst í kjölfar hlaups. Það gerist þó ekki alltaf og árið 2021 varð til dæmis hlaup án þess að eldgos hafi brotist fram.

Jök­ul­hlaupið í Grím­svötn­um hófst á fimmtu­dag og var það talið munu ná há­marki um helg­ina. Rík­is­lög­reglu­stjóri lýsti yfir óvissu­stigi al­manna­varna á fimmtu­dag vegna hlaups­ins.

„Síðast þegar það varð svona at­b­urðarrás, það er að segja jök­ul­hlaup og gos í kjöl­farið, var árið 2004 og þar áður árið 1934 og 1922. Það hafa samt al­veg brot­ist út gos á milli þess,“ sagði Bryn­dís Ýr Gísla­dótt­ir, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, í samtali við mbl.is í gær.

Þor­vald­ur Þórðar­son, pró­fess­or í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands, sagði í sam­tali við mbl.is í síðustu viku að komi til goss yrði það lítið og stæði yfir í ör­fáa daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert