Nota dróna til að meta aðstæður í Grindavík

Mannskapur var fluttur um borð í Þór með þyrlu svo …
Mannskapur var fluttur um borð í Þór með þyrlu svo hægt væri að flytja hafnarbát Grindavíkur til Þorlákshafnar. Árni Sæberg

Varðskipið Þór hefur verið við störf í Grindavík frá því eldgos hófst norðan við bæinn hófust í gær. Verkefni Landhelgisgæslunnar á svæðinu eru víðtæk að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.

Dróni notaður til að kanna aðstæður

Meðal þeirra verkefna sem Landhelgisgæslan hefur séð um á svæðinu er að vakta stöðuna. „Dróni hefur verið notaður til varpa upp betri mynd af ástandinu í bænum og meta aðstæður. Upplýsingum er síðan komið til samhæfingarmiðstöð almannavarna, segir Ásgeir í samtali við mbl.is. 

Áhöfn varðskipsins fór einnig á léttbát til þess að opna fyrir brunahana við smábátahöfnina í bænum og var mannskapur á vegum Grindarvíkurbæjar sendur með þyrlu í varðskipið vegna þess að flytja þurfti hafnarbát Grindarvíkur til Þorlákshafnar. 

„Landhelgisgæslan hefur svo flogið með mannskap um svæðið til þess að meta aðstæður, sprungur og þvíumlíkt. Síðan verður flogið og aðstæður kannaðar í fjarskiptastöð sem er staðsett nálægt Grindavík,“ segir Ásgeir. 

Tvær af þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Tvær af þyrlum Landhelgisgæslunnar. Árni Sæberg

Landhelgisgæslan áfram í viðbragðsstöðu

Ásgeir segir að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hafa flogið yfir svæðið frá því eldgos hófst og verið í viðbragðsstöðu. Auk þess hafa varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og séraðgerðasveit verið til taks og munu áfram vera það. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert