Órói tengist suðu í jarðhitakerfinu

Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls.
Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls. mbl.is/RAX

Jarðskjálftamælir á Grímsfjalli hefur sýnt aukinn hátíðnióróa frá miðnætti í dag. Er hann talinn tengjast suðu í jarðhitakerfinu í Grímsvötnum sem gjarnan kemur fram í lok jökulhlaupa. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 

Þar segir að vatnshæð í Gígjukvísl hefur verið nokkuð stöðug frá því í nótt sem bendir til þess að rennsli í ánni sé í hámarki. Búast má við að rennsli fari hægt minnkandi næstu daga þar til hlaupinu lýkur.

Sambærilegur hátíðniórói hefur mælst í síðustu Grímsvatnahlaupum sem ekki hafa hleypt af stað eldgosi. Ef til eldgoss kæmi í Grímsvötnum er gert ráð fyrir því að ákafrar aukningar í smáskjálftavirkni yrði vart áður en gos hæfist.

Lítil jarðskjálftavirkni hefur verið í Grímsvötnum í dag og um helgina, en frá því á föstudag hafa átta jarðskjálftar mælst þar, allir undir tveimur að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert