Þórhallur genginn til liðs við ráðgjafarfyrirtæki

Þórhallur mun sinna stjórnendaþjálfun og stjórnendaráðgjöf.
Þórhallur mun sinna stjórnendaþjálfun og stjórnendaráðgjöf. Ljósmynd/Aðsend

Þórhallur Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar, er genginn til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti þar sem hann mun gegna stöðu sérstaks ráðgjafa.

Þetta kemur fram í tilkynningu Góðra samskipta.

„Þórhallur hefur gegnt krefjandi stjórnunar hlutverkum í meira en tvo áratugi, fyrst sem ritstjóri Kastljóssins um árabil, síðar sem dagskrárstjóri RÚV og framkvæmdastjóri framleiðslu hjá Sagafilm - þar sem hann sat einnig í stjórn fyrirtækisins. Síðast var Þórhallur framkvæmdastjóri miðla Sýnar en sagði starfi sínu lausu í byrjun sumars,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.

Þjálfað fimm hundruð stjórnendur

Þórhallur lærði leiklist en lauk síðar M.A. gráðu í sjónvarpsþáttagerð frá Goldsmiths-háskólanum í London.

Þórhallur og Andrés Jónsson, stofnandi Góðra samskipta, hafa á síðustu árum í sameiningu þjálfað hátt í fimm hundruð stjórnendur í íslensku atvinnulífi.

„Það er fengur fyrir viðskiptavini Góðra samskipta að fá aukinn aðgang að dýrmætri innsýn og leiðsögn Þórhalls. Við Þórhallur þekkjumst vel eftir að hafa kennt saman í meira en áratug og þar af fimm ár í MBA-náminu í Háskóla Íslands. Eitt helsta einkenni Þórhalls sem stjórnanda hefur verið að láta aðra skína, finna hæfileikafólk og beita uppbyggilegri endurgjöf við að hjálpa því að uppgötva og þróa sinn stjórnunarstíl. Ég hlakka mikið til að vinna með honum að fleiri slíkum verkefnum á næstunni,“ er haft eftir Andrési Jónssyni, framkvæmdastjóra Góðra samskipta í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert