Fleiri óskir um fjölskyldusameiningar hér á landi

Aðgerðasinnar hafa í mótmælaskyni dvalið í tjöldum á Austurvelli undanfarið.
Aðgerðasinnar hafa í mótmælaskyni dvalið í tjöldum á Austurvelli undanfarið. mbl.is/Óttar

Norðurlönd hafa í einhverjum tilvikum aðstoðað fólk yfir landamæri Gasa og Egyptalands.

Í flestum tilvikum er þar um að ræða ríkisborgara, fjölskyldur þeirra og dvalarleyfishafa sem höfðu dvalarleyfi fyrir 7. október og höfðu áður dvalið í viðkomandi landi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Fjölskyldusameiningar almennt ekki veittar á öðrum Norðurlöndum

Að jafnaði er um fáa einstaklinga að ræða samkvæmt upplýsingum stjórnvalda og hafa fjölskyldusameiningar almennt ekki verið veittar á hinum Norðurlöndunum frá 7. október, ólíkt því sem gert hefur verið á Íslandi, eins og fram kemur í tilkynningu.

Aðgerðasinnar hafa haldið því fram að það sé ósköp einfalt að koma fólkinu frá Gasa. Síðast í umfjöllun á mbl.is fyrr í dag.

„Eina sem þarf að gera er að senda egypsku sendi­ráðunum á Norður­lönd­un­um upp­lýs­ing­ar um nöfn­in og dval­ar­leyfi, og koma nöfn­um fólks­ins á Rafha-landa­mæralist­ann. Síðan þarf diplómata til að bíða við landa­mær­in og taka á móti þeim. Þetta er svo ein­falt, það er eina sem þarf að gera, en Bjarni er með fót­inn við dyrn­ar,“ sagði Ask­ur Hrafn Hann­es­son aðgerðasinni og einn þeirra sem stend­ur að skipu­lagn­ingu mót­mæl­anna á Austurvelli.

Samráð við önnur Norðurlönd og vinaþjóðir

Í tilkynningu stjórnvalda segir að undanfarnar vikur hafi stjórnvöld átt í samráði við Norðurlönd og aðrar vinaþjóðir vegna dvalarleyfa og fjölskyldusameiningar palestínskra dvalarleyfishafa á Íslandi.

Ísland sé ekki með sendiráð á svæðinu nærri Gasa og að aðstoð annarra Norðurlanda sé takmörkuð. Þá segir að fjöldinn sem sé undir sé verulegur og langt umfram nágrannaríki Íslands miðað við höfðatölu og í mörgum tilfellum einnig í eiginlegum tölum. Ísland skeri sig úr meðal Norðurlanda þegar komi að alþjóðlegri vernd, bæði í fjölda umsókna og veitingu.

Tafla/Stjórnarráð Íslands

Margfalt fleiri umsóknir um alþjóðlega vernd

Umsóknir um alþjóðlega vernd hafa verið hlutfallslega flestar á Íslandi frá árinu 2017. Árið 2022 fengu 1.135 einstaklingar alþjóðlega vernd á Íslandi af þeim 2.162 einstaklingum sem sóttu um

„Umsækjendur frá Úkraínu eru ekki inni í þeirri tölu og heildartalan því umtalsvert hærri. Til samanburðar má nefna að á sama ári fékk Danmörk 2.527 umsóknir og samþykkti 1.403 en hafa ber í huga að þar eru umsóknir um framlengingu verndar taldar með sem eykur fjölda umsókna og hlutfallslega hækkun verndar,“ að því er fram kemur í tilkynningu stjórnvalda.

Noregur fékk 4.090 umsóknir og samþykkti 1.294, Svíþjóð fékk 16.738 umsóknir og samþykkti 3.742 og Finnland fékk 4.683 umsóknir og samþykkti 1.760.

Þannig fékk Ísland um 580 umsóknir á hverja 100 þúsund íbúa og veitti vernd vegna 304 þeirra – margfalt fleiri umsóknir og samþykkti einnig hlutfallslega fleiri umsóknir en flest hin Norðurlöndin.

Tafla/Stjórnarráð Íslands

Sambærilegur fjöldi umsókna Palestínumanna á Íslandi og á öðrum Norðurlöndum til samans

Íslenskum stjórnvöldum bárust 223 umsóknir um alþjóðlega vernd frá ríkisborgurum Palestínu á síðasta ári en í Svíþjóð voru þær 86. Danmörk, Finnland og Noregur flokka umsóknir frá Palestínumönnum sem umsóknir frá ríkisfangslausum einstaklingum og því liggja ekki fyrir nákvæmar tölur um fjölda umsókna frá Palestínumönnum í þeim löndum. Ástæðan fyrir þeirri flokkun er að ríkin viðurkenna ekki Palestínu sem sjálfstætt ríki.

Dönskum stjórnvöldum höfðu borist 82 umsóknir frá ríkisfangslausum einstaklingum 30. nóvember 2023. Umsóknir frá ríkisfangslausum einstaklingum voru 11 í Finnlandi á síðasta ári og 92 í Noregi.

Þannig liggur fyrir að fjöldi umsókna frá Palestínumönnum um vernd á Íslandi er sambærilegur og samanlagður fjöldi umsókna Palestínumanna um vernd á öllum hinum Norðurlöndunum samanlagt.

Palestínumenn sækja til Íslands

Skýringuna á mun á fjölda umsókna segja stjórnvöld líklega fólgna í frávikum í lögum, reglum eða framkvæmd laga um útlendinga hér á landi frá grannþjóðum okkar, sem virðist gera Ísland eftirsóttara land en önnur Norðurlönd í augum þessa hóps.

Þannig hafi töluverður hluti palestínskra umsækjenda hér á landi fengið vernd í öðru Evrópuríki áður en sótt var um vernd hérlendis. Frá árinu 2015 hafa um 750 Palestínumenn sótt um alþjóðlega vernd hérlendis og eru um 80% þeirra karlmenn. Af þeim voru um 53% þegar búnir að fá veitta alþjóðlega vernd í öðru Evrópuríki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert