Segja SA hafna nálgun um þjóðarsátt

Frá fundi Samtaka atvinnulífsins og Breiðfylkingarinnar þriðja dag þessa árs.
Frá fundi Samtaka atvinnulífsins og Breiðfylkingarinnar þriðja dag þessa árs. mbl.is/Kristinn Magnússon

Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði hvetur Samtök atvinnulífsins til að rýna betur hófstilltar tillögur fylkingarinnar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja.

Kemur þetta fram í fréttatilkynningu Breiðfylkingarinnar en að henni standa Landssamband íslenskra verslunarmanna, Samiðn, Efling, VR og Starfsgreinasambandið. Kveður fylkingin SA hafna nálgun hennar um þjóðarsátt í kjölfar þess er hún setti fram hófsamar tillögur um tilteknar launahækkanir í þriggja ára kjarasamningi með ítarlegum útfærslum og rökstuðningi.

„Heildarkostnaðarmat tillagna Breiðfylkingarinnar er vel innan þeirra marka sem Seðlabankinn gerir ráð fyrir í Þjóðhagsspá sinni til næstu þriggja ára. Nánast er einsdæmi að verkalýðshreyfingin hafi í upphafi kjaraviðræðna lagt fram tillögur sem eru innan þeirra marka,“ segir í tilkynningu Breiðfylkingarinnar.

Jákvæðni á grunni tillagnanna

Á grunni tillagnanna hafi skapast mikil jákvæðni sem báðir samningsaðilar hafi tjáð í fjölmiðlum. „Aðilar gáfu út sameiginlega yfirlýsingu, í kjölfar fundar þar sem Breiðfylkingin kynnti tillögur sínar, þar sem þeir hvöttu til aðhalds í gjaldskrár- og verðhækkunum. Jafnframt var varað við launaskriði, en það er einsdæmi að verkalýðshreyfingin á Íslandi taki undir með atvinnurekendum í gagnrýni á launaskrið,“ segir þar enn fremur.

Tímafrek og á köflum mjög tæknileg umræða um reiknilíkön hafi svo átt sér stað milli samningsaðila síðan jákvæðnin skapaðist og SA þar smátt og smátt fjarlægst upphafleg og jákvæð viðbrögð.

„SA hafa fengið það út að tillögur Breiðfylkingarinnar séu of kostnaðarsamar og í staðinn sett fram tillögur sem eru langt neðan við þær hóflegu hækkanir sem Breiðfylkingin lagði til í upphafi viðræðna. Breiðfylkingin hefur andmælt nálgun SA með gögnum og rökum í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Í á aðra viku hefur hvorki gengið né rekið í viðræðunum vegna andstöðu SA við launatillögur Breiðfylkingarinnar,“ segja ritarar fréttatilkynningarinnar sem eru formenn þeirra félaga sem upp er talin hér að ofan nema í tilfelli LÍV formaður samninganefndar.

SA snúi af brautinni

Breiðfylkingin vilji hvetja SA til að snúa af þessari braut og taka skref fram á við, ekki til baka. Hvíli mikil ábyrgð á samningsaðilum að ganga í takt að settu marki. Það markmið sé heildstæð kjarasamningagerð, studd af löngu tímabærum umbótum á tilfærslukerfum hins opinbera, þar sem hóflegar krónutöluhækkanir verði forsenda lækkunar á verðbólgu og vöxtum.

„Breiðfylkingin hefur fyrir sitt leyti brugðist við kalli samfélagsins um ábyrga kjarasamningagerð og býst við því sama af öðrum. Breiðfylkingin hvetur SA til að rýna betur hófstilltar tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja. Sé það gert þá er leiðin til farsællar kjarasamningagerðar greið,“ segir að lokum í tilkynningu Breiðfylkingarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert