Þekkir þú þennan mann?

Héraðssaksóknari óskar eftir að ná tali af manni á meðfylgjandi myndum vegna máls sem er til rannsóknar og varðar skemmdarverk á bifreið lögreglumanns þann 20. desember 2023, og er sá vinsamlegast beðinn um að hafa samband við héraðssaksóknara, Skúlagötu 17 í Reykjavík í síma 444 0150.

„Ef einhverjir þekkja til aðilans, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í héraðssaksóknara, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@hersak.is,“ segir í tilkynningu frá héraðssaksóknara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert