Rafmagn fór af Grindavík í nótt

Heildar fasteignarmat eigna í Grindavík á að öllum líkindum eftir …
Heildar fasteignarmat eigna í Grindavík á að öllum líkindum eftir að taka breytingum. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

Rafmagn fór af Grindavík kl. 03.30 í morgun þegar stofnstrengur sem liggur undir hrauni í kjölfar eldgossins um síðustu helgi gaf sig. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Veitum.

Vél bilaði

„Undirbúningur hófst strax við að koma á rafmagni með varaaflsvélum frá Landsneti og var rafmagn komið á hluta bæjarins á innan við tveimur tímum,“ segir í tilkynningunni.

Önnur varaaflsvéla Landsnets bilaði og er því ekki rafmagn á öllum bænum.

„Tvær varaaflsvélar voru komnar upp og tengdar í Grindavík en önnur þeirra bilaði við uppkeyrslu. Vegna þess er ekki rafmagn á öllum bænum en verið er að vinna í að koma eins miklu rafmagni á og ein vél þolir. Áfram er unnið að því með Landsnet að leggja loftlínu yfir hraunið sem varaleið og er gert ráð fyrir að línan verði tilbúin síðar í dag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert