Um 100 manns hafa verið við störf í ýmiss konar viðgerðum og björgunaraðgerðum í Grindavík síðustu daga.
Þetta kemur fram í uppfærslu björgunarsveitarinnar Þorbjarnar á Facebook, þar sem farið er yfir stöðu mála í bæjarfélaginu.
Fyllsta öryggis virðist vera gætt við störfin ef mið er tekið af færslunni.
Björgunarsveitin segir „gríðarlega mikinn kraft“ hafa verið settan í ýmis verkefni í bænum.
„Sveitir pípara og rafvirkja í fylgd viðbragðsaðila hafa farið um bæinn og unnið hörðum höndum að því að koma hita á hús. Misjafnt er hvort eða hversu mikil vinna fer fram á hverjum stað fyrir sig en reynt hefur verið að komast yfir eins mörg hús og kostur er. Þessi vinna er langt komin, eða nánast búin, þegar þetta er skrifað,“ segir í færslunni, sem birtist nú á tólfta tímanum í kvöld.
Bent er á að hópar á vegum Landsnets og HS Veitna hafi unnið að því að koma raflínu milli Svartsengis og Grindavíkur í gagnið og tókst það nú í kvöld, eins og greint var frá á mbl.is.
Jarðvinnuverktakar ásamt slökkviliði Grindavíkur og starfsmönnum bæjarins hafi enn fremur unnið að því að koma kaldavatnslögninni inn í bæinn í gang aftur.
Til þess þurfi að moka töluverðu af nýju hrauni sem enn er um 700 gráða heitt.
„Þessi vinna gengur vel og vonandi verður hægt að hleypa vatni á innan tíðar,“ segir sveitin.
Grindvískir jarðvinnuverktakar hafi þá síðustu daga opnað tvær sprungur sem þveruðu Hópsbraut. Þeir vinni nú að viðgerðum svo hægt verði að aka Hópsbrautina á ný.
Þessar viðgerðir séu sams konar þeim sem farið var í á Ránargötu, við Kirkjuna, eftir skjálftana 10. nóvember.
Tekið er fram að settir hafi verið upp fleiri hundruð metrar af girðingum til þess að girða af þau svæði þar sem sprungur eru og jarðfall mögulegt. Sérstaklega sé verið að girða af opin svæði þar sem ekki hefur verið sett styrking í undirlagið eða sprungur hreinlega opnar.
„Allir sem vinna í Grindavík þessa dagana þurfa að fylgja ströngum öryggiskröfum og fá sérstakar öryggisleiðbeiningar. Til dæmis þá þarf hver og einn að vera í fallvarnarbelti og með hjálm í fylgd með viðbragðsaðilum sem eru svo með gasmæli og fjarskiptabúnað til viðbótar. Á iðnaðarsvæðinu austast í Grindavík, t.d. í Staðarsundi, þurfa menn að vera tryggðir í öryggislínum á meðan unnið er þar.“
Þá er búið að smíða færanlega fimm metra stálbrú til þess að þvera sprungur og auka öryggi þeirra sem starfa í Grindavík.
Til standi að smíða aðra sams konar brú til að geta haft fleiri vegi opna í einu.
Loks er þess getið að göturnar Eyjasund og Fiskasund séu lokaðar vegna skemmda.
Hópsbraut og Austurvegur séu lokaðar vegna framkvæmda og viðgerða.
Þá sé búið að opna Ránargötu að Víkurbraut aftur eftir að hún lokaði 10. nóvember, sem séu gleðitíðindi.
„Allar þessar aðgerðir miða að því að auka öryggi þeirra sem eru í Grindavík hverju sinni með það að markmiði að verðmætabjörgun geti hafist um leið og færi gefst.
Mikil áhersla er nú lögð á að skipuleggja verðmætabjörgun í bænum en eins og fram hefur komið verður ekki hægt að fara í slíkar aðgerðir fyrr en að hættumatskort Veðurstofu Íslands breytist,“ segir í færslunni.
„Að lokum viljum við koma á framfæri miklu þakklæti til allra þeirra sem tekið hafa þátt í verkefnum í Grindavík að undanförnu. Samhugur og samstarf hefur einkennt starfið en upp undir 100 manns hafa verið við störf á degi hverjum.“