Rafmagn komið til Grindavíkur um loftlínuna

Grindavík upplýst eins og sjá má á vefmyndavél mbl.is nú …
Grindavík upplýst eins og sjá má á vefmyndavél mbl.is nú í kvöld. Skjáskot/mbl.is

Búið er að koma rafmagni til Grindavíkur um loftlínu, sem reist var yfir nýja hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg og skemmdi stofnstrengi HS Veitna frá Svartsengi til Grindavíkur.

Rafmagn var komið á línuna kl. 20 í kvöld og í kjölfarið var slökkt á varavélum Landsnets.

Tókst á innan við tveimur sólarhringum

Í tilkynningu frá HS Veitum segir að vinnuflokkar á þeirra vegum hafi unnið sleitulaust að því síðustu daga að halda rafmagni á Grindavík, í samvinnu við almannavarnir, Landsnet og HS Orku.

Hraun fór yfir stofnlagnir milli Svartsengis og Grindavíkur í eldgosi sem hófst um þar síðustu helgi.

„Tókst að koma á rafmagni á bæinn á innan við tveimur sólarhringum frá því að eldgos hófst og var það gert með strengjum sem liggja undir heitu hrauninu. Annar strengur af tveimur gaf sig síðasta föstudag en í ljós kom að hinn strengurinn var enn í lagi og var því rafmagn aftur komið á bæinn skömmu síðar,“ segir í tilkynningunni.

Sundhnúkahraunslína 1

Á sama tíma var hafinn undirbúningur við að reisa loftlínu yfir hraunið því ekki var ljóst hversu lengi seinni strengurinn myndi duga undir heitu hrauninu. Fór svo snemma á sunnudagsmorgun að hann gaf sig endanlega.

Varavélar Landsnets sáu bænum fyrir rafmagni þar til nýja loftlínan komst í gagnið í dag.

Hefur hún fengið nafnið Sundhnúkahraunslína 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert