„Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á matvælaráðherra.“
Svo hljóðar vantrauststillaga sem Flokkur fólksins hefur lagt á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Tillagan birtist á vef Alþingis nú síðdegis.
Á sama tíma hefur Svandís tilkynnt að hún sé komin í veikindaleyfi að læknisráði.
Í tilkynningu greinir hún frá því að hún hafi greinst með brjóstakrabbamein í morgun.