Varðskipið Þór er ekki lengur staðsett fyrir utan höfnina í Grindavík. Skipið verður samt sem áður áfram í nálægð við svæðið, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.
Þetta var ákveðið í samráði við samhæfingarmiðstöð almannavarna í ljósi þess að rólegra er á svæðinu eins og er. Skipið er þó tilbúið að bregðast við ef á þarf að halda.
Þór hafði verið fyrir utan Grindavík í um eina viku, eða síðan eldgosið hófst rétt fyrir utan bæinn um miðjan janúar.