Þróa verklag um samþætta þjónustu við ættleidd börn

Elísabet Salvarsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- …
Elísabet Salvarsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrita samning. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gert samning við Íslenska ættleiðingu um þróun verklags um samþætta þjónustu við börn sem ættleidd eru til Íslands. Samningurinn er gerður til tveggja ára og nemur þremur milljónum króna. 

Börn sem ættleidd eru til Íslands eru á ólíkum aldri við komu til landsins, með ólíkan bakgrunn og ólíkar þjónustuþarfir. Samningurinn miðar því að því að tryggja eftir þörfum að ættleidd börn fái samþætta þjónustu á grundvelli laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins

Meginmarkmiðið að veita aðgang að samþættri þjónustu

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi þvert á kerfi og án hindrana.Lögin ná til allra barna, þ.m.t. ættleiddra barna.

Íslensk ættleiðing er eina ættleiðingarfélagið á Íslandi og hefur löggildingu frá stjórnvöldum til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Samstarfið við félagið gerir stjórnvöldum kleift að ná til þessa hóps og þróa verklag með þarfir hans í huga við innleiðingu laganna.

Við lok samningstíma, eftir tvö ár, skal meta framvindu og ávinning verkefnisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert