Rafmagnstruflun víða á höfuðborgarsvæðinu

Rafmagnslaust er í hluta miðbæjar Reykjavíkur.
Rafmagnslaust er í hluta miðbæjar Reykjavíkur. mbl.is/SES

Rafmagnstruflun er víða á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt upplýsingum mbl.is en fyrr í dag fór rafmagn af öllum Suðurnesjum.

Eftirfarandi kemur fram á vef Veitna:

„Í kerfi Landsnets varð truflun þegar Suðunesjalína fór út með tilheyrandi rafmagnsleysi á Suðurnesjum. Þetta olli stuttri rafmagnstruflun víða á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15:01. Þetta hafði einnig áhrif á dælustöðvar okkar í hitaveitu sem duttu út í stutta stund.“

Uppfært kl. 16.10:

„Vegna háspennubilunar er rafmagnslaust á dreifikerfi okkar. Eins og er vitum við ekki á hversu stóru svæði bilunin er.“

Fréttin verður uppfærð. 

Umferðarteppa í Borgartúni vegna rafmagnsleysis.
Umferðarteppa í Borgartúni vegna rafmagnsleysis. mbl.is/Iðunn
Umferðarþungi á Miklubraut í rafmagnsleysi.
Umferðarþungi á Miklubraut í rafmagnsleysi. mbl.is/Kári Freyr
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert