Innbrotsþjófar á ferð á höfuðborgarsvæðinu

Undanfarið hefur verið nokkuð um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu og eru þjófarnir einkum á höttunum eftir skartgripum og peningum að því er virðist.

„Vegna þessa er það ítrekað að fólk láti lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Myndefni úr öryggismyndavélum er sömuleiðis oft mjög hjálplegt,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Fylgjast gjarnan með húsum

Hún segir einnig, að innbrotsþjófar fylgist gjarnan með húsum áður en þeir láti til skarar skríða, hringi jafnvel dyrabjöllunni og þykist vera að spyrja eftir einhverjum, og því sé mikilvægt að hafa þessi atriði í huga.

Betra að hringja oftar en sjaldnar

„Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan. Lögreglan vill enn fremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin. Sömuleiðis er mikilvægt að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með tilkynningu á samfélagsmiðlum.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444 1000 eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert