Lætur af störfum hjá Samtökunum '78

Daníel E. Arnarsson.
Daníel E. Arnarsson.

Daníel E. Arnarsson greinir frá því á Facebook að hann muni láta af störfum í sumar sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78. 

Daníel hefur sinnt starfinu frá árinu 2017 eða í sjö ár. 

Á þessum sjö árum hefur mikið gengið á, langir dagar, stundum erfitt en alltaf gott. Hef kynnst ógrynni af dásamlegum vinum og kunningjum. Ég er ekki að fara neitt strax, en tel réttast að tilkynna þetta með góðum fyrirvara,“ segir Daníel meðal annars í færslunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert