Alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi

Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við Sólheimasand laust fyrir klukkan 19 í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Suðurlandsvegur er lokaður vegna slyssins og verður lokaður næstu klukkustundir.

Engar hjáleiðir eru fram hjá slysstað og vegfarendur því beðnir um að fylgjast með fréttum af því er vegurinn opnar á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert