Alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut

Slysið varð um klukkan sjö í kvöld.
Slysið varð um klukkan sjö í kvöld. mbl.is

Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut, rétt við álverið í Straumsvík, um klukkan sjö í kvöld. Lokað hefur verið fyrir umferð í báðar áttir. 

Viðbragðsaðilar eru með mikinn viðbúnað á svæðinu. 

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er á leið á slysstað og ekki fengust frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert