Einn fluttur á slysadeild

Slysið varð um klukkan sjö í kvöld.
Slysið varð um klukkan sjö í kvöld. mbl.is

Einn var fluttur á sjúkrahús í kvöld eftir alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut, í grennd við álverið í Straumsvík, þar sem fólksbifreið og vöruflutningabíll lentu saman.

Þetta staðfestir Jón Kristinn aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is. 

Var það ökumaður fólksbifreiðarinnar sem var fluttur á slysadeild, en Jón Kristinn segir viðbragðsaðila hafa þurft að beita klippum til að ná bílstjóranum út úr bílnum.

Kveðst hann ekki vita hvort um heimamann eða ferðamann hafi verið að ræða en aðspurður segir hann slysið alvarlegt.

Ökumaður vöruflutningabílsins slapp frá slysinu án alvarlegra áverka. 

Uppfært kl.22.01:

Opnað hefur verið fyrir umferð um Reykjanesbraut að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert