Veitt verða viðbótarframlög til Rauða krossins á Íslandi vegna þeirrar neyðar sem nú ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs að ákvörðun Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra. Þá mun Ísland verða aðili að sjóði á vegum Alþjóðabankans sem styðja mun við enduruppbyggingu og endurreisn innviða í Palestínu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Ísland er eitt sextán ríkja sem frestað hafa framlögum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna í kjölfar grunsemda um að starfsmenn stofnunarinnar hafi átt aðild að árás Hamas-hryðjuverkasamtakanna á Ísrael 7. október.
Um er að ræða 25 milljóna króna framlag til Rauða krossins á Íslandi til að styðja við starfsemi Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) sem starfar með palestínska Rauða hálfmánanum á Gasasvæðinu og veitir nauðsynlega og lífsbjargandi aðstoð.
Samningurinn við Alþjóðabankann sem ráðherrann hefur ákveðið að undirrita kveður á um framlög til næstu fimm ára í sjóð (Palestinian Partnership for Infrastructure Development) sem styður við enduruppbyggingu og endurreisn innviða í Palestínu, einkum á Gasasvæðinu. Árlegt framlag Íslands í sjóðinn mun nema 400 þúsund Bandaríkjadölum eða rúmum 55 milljónum króna.
Í tilkynningunni segir að Alþjóðabankinn sé ein af fjórum áherslustofnunum Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Hin Norðurlöndin eiga þegar aðild að endurbyggingarsjóðnum og hafa jákvæða reynslu af störfum hans en önnur aðildarríki eru Bretland, Ástralía, Frakkland, Holland, Ítalía, Króatía og Portúgal.
Haft er eftir Bjarna Benediktssyni í tilkynningunni að Ísland hafi undanfarið veitt verulega fjármuni til svæðisins vegna þeirra hörmunga sem íbúar gangi nú í gegnum.
„Með þessu sýnum við enn frekari stuðning okkar í verki. Með framlaginu til Alþjóðabankans felst mikilvægur stuðningur við endurreisn Palestínu að átökunum loknum, en bankinn mun hafa lykilhlutverki að gegna í þeim efnum. Við horfum líka til ástandsins nú, sem er skelfilegt, og höldum áfram að leggja af mörkum til mannúðarstarfs.“