Það hefur verið í nógu að snúast hjá starfsmönnum Áreksturs.is í dag en þeir hafa þurft að sinna vel á þriðja tug árekstra á höfuðborgarsvæðinu.
„Það má segja að við séum ekki búnir að stoppa í dag en ástandið var þó ekki eins slæmt og við bjuggumst við,“ segir Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri Áreksturs.is, við mbl.is.
Hann segir að aðstæður í dag hafi verið slæmar og það hafi verið erfitt að athafna sig í aðstæðunum sem hafi myndast.
„Þetta hefur tafið vinnuna hjá okkur,“ segir Kristján. Aðspurður hversu mörgum útköllum þeir hafi sinnt í dag segir hann: „Mér sýnist að þau séu orðin 25. Við höfum allir verið úti á vettvangi í allan dag,“ segir Kristján.
Hann segir að umferðin hafi verið þung í morgun en hún hafi ekki verið eins þung eftir hádegið og hann hafði búist við.
„Ég held að fólk hafi hlustað á þau fyrirmæli um að reyna að halda sig heima og persónulega hef ég heyrt af mörgum sem ákváðu að vinna heima í dag. Ég fagna því,“ segir Kristján.
Kristján segir að það hafi verið rosaleg törn hjá sér og hans mönnum í rúma viku. „Þetta hafa verið svo margir dagar í röð og það virðist ekkert lát vera á þessu.“
Árekstur.is aðstoðar ökumenn sem lent hafa í árekstri við að fylla út tjónaskýrslur, tryggja nákvæma skoðun á aðstæðum ásamt því að taka myndir.