Skjálftarnir á 3-5 kílómetra dýpi

Sundhnúkur og Hagafell liggja yfir kvikuganginum, sem nær frá gígaröðinni …
Sundhnúkur og Hagafell liggja yfir kvikuganginum, sem nær frá gígaröðinni og í suð-suðvestur undir Grindavík. Kort/mbl.is

í gær mældust rétt rúmlega 20 jarðskjálftar umhverfis kvikuganginn við Sundhnúkagíga. Frá miðnætti hafa mælst þar um 11 minni skjálftar. Upptök þeirra flestra er á 3-5 kílómetra dýpi.

Kvikusöfnun heldur áfram undir svæðinu við Svartsengi og hefur land risið allt að 8 mm á dag undanfarna daga.

Hætta í tengslum við sprungur innan Grindavíkur er áfram metin mjög mikil.

Áfram er fylgst vel með skjálftavirkni umhverfis kvikuganginn sem og þenslu, aflögun og virkni á svæðinu í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert