Lögreglan á Vestfjörðum handtók tvo einstaklinga í nótt fyrir að virða ekki vegalokun vegna snjóflóðahættu.
Fram kemur í facebookfærslu lögreglunnar að hún hafði í nótt afskipti af ökumanni og farþega bifreiðar. Henni hafði verið ekið frá Súðavík til Ísafjarðar þrátt fyrir að veginum þar á milli hafði verið lokað klukkan hálfátta í gærkvöldi af öryggisástæðum vegna mikillar snjóflóðahættu.
„Við athugun kom í ljós að þeir sem í bifreiðinni voru (ökumaður og einn farþegi) höfðu opnað lokunarhlið á veginum við Ísafjörð og haldið til Súðavíkur þar sem þeir opnuðu lokunarhlið þeim megin og skildu eftir opið áður en þér héldu aftur til baka, til Ísafjarðar,” segir í færslunni.
Fram kemur að fólkinu hafi verið sagt að það yrði kært vegna háttseminnar. Alvarleiki málsins var ítrekaður og fólkinu sagt að öll almenn umferð væri bönnuð um veginn til morguns, að minnsta kosti.
Í framhaldinu var hliðinu lokað og gengið úr skugga um að enginn væri á umræddum vegakafla.
„Nokkru síðar sáu lögreglumenn hvar bifreið var ekið innan lokunarsvæðisins í Skutulsfirði í átt að Súðavík og hélt lögregla á eftir bifreiðinni. Reyndust þar á ferð sömu einstaklingar og fyrr um nóttina. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangageymslum enda háttsemi þeirra til þess fallin að stuðla að hættu fyrir þá, aðra vegfarendur sem og viðbragsaðila,” segir lögreglan.
Fólkinu hefur verið sleppt eftir yfirheyrslur.
Í færslunni segir að háttsemi sem þessi sé litin alvarlegum augum, enda hafði ofanflóðaeftirlit Veðurstofu Íslands metið líkur á að snjóflóð næði vegi yfir 40%.
„Enginn ætti að leika sér að þessum eldi,” segir lögreglan að lokum.