Klara Ósk Kristinsdóttir
Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) hafa borist samtals 432 tilkynningar um tjón vegna náttúruhamfaranna í Grindavík, þar af bárust 8 tilkynningar í síðustu viku, samkvæmt upplýsingum frá NTÍ. 266 húseignir og 15 innbú hafa verið skoðuð en eftir standa óskoðuð 122 tjón á húseignum og 29 tjón á innbúum/lausafé sem óljóst er hvenær hægt verður að skoða.
Alls hafa 53 húseignir (30 íbúðareignir og 23 atvinnueignir) og 2 innbú verið metin sem altjón af matsmönnum NTÍ. Haft hefur verið samband við alla eigendur húsnæðis sem matsmenn hafa þegar staðfest að sé óviðgerðarhæft.
Að sögn NTÍ er í nokkrum tilvikum um að ræða flókna stöðu vegna íbúðarhúsa sem talin eru vera óviðgerðarhæf en bílskúrar við húsin eru minna skemmdir og teljast því viðgerðarhæfir. Ekki hefur verið leitt til lykta hvernig farið verður með þau mál. Einnig er ljóst að atburðirnir 14. janúar höfðu í mörgum tilfellum í för með sér verulegt viðbótartjón á þeim eignum sem áður höfðu verið metnar sem hlutatjón. Því er ekki raunhæft að leggja fram tjónamat á hlutatjónseignum fyrr en tækifæri hefur gefist til að leggja mat á þau áhrif sem eldgosið og jarðhræringarnar í janúar hafa haft í för með sér.