Stefnir íslenska ríkinu vegna banns við heimför

Búið er að stefna íslenska ríkinu, meðal annars vegna banns …
Búið er að stefna íslenska ríkinu, meðal annars vegna banns við dvöl í Grindavík. mbl.is/Eyþór

Grindvíkingurinn Stefán Kristjánsson hefur stefnt íslenska ríkinu, með dómsmálaráðherra í fyrirsvari, vegna banns lögregluyfirvalda við för hans til Grindavíkur, dvöl í eigin húsi og eigin fyrirtæki.

Jón Steinar Gunnlaugsson fer með málið fyrir hans hönd og hefur Héraðsdómur Reykjavíkur þegar staðfest beiðni um flýtimeðferð.

Þess er krafist að staðfest verði með dómi að stefnanda sé og hafi verið óskylt að hlíta ákvörðun Ríkislögreglustjóra frá 13. janúar sem gerði Grindvíkingum óheimilt að fara til Grindavíkur.

Lög um almannavarnir ganga ekki framar stjórnarskrá

Jón Steinar segir í samtali við mbl.is að stefnandinn byggi þetta á ákvæði 71. greinar stjórnarskrár sem kveður á um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.

Telur stefnandinn að stjórnvöldum sé ekki heimilt að meina mönnum að fara heim til sín og á starfsstöð sína, en Stefán rekur fyrirtækið Einhamar Seafood ehf., án þess að stjórnvöld geti að lágmarki sýnt fram á það að öðrum stafi hætta af þeirri för. 

„Yfirvöld hafa vísað í lög um almannavarnir til stuðnings heimildum sínum til þess að beita fólk þessu valdi, en þau lög ganga ekki framar stjórnarskránni,“ segir Jón.

Málið þingfest á miðvikudag

Jón man sjálfur ekki eftir öðru eins máli.

„Dómkrafan er í raun og veru um það hvort hægt sé að meina mönnum að fara heim til sín.“

Hann vonast til þess að hægt verði að flytja málið munnlega og fá niðurstöðu í það í þessum mánuði eða í mars. Málið verður þingfest á miðvikudaginn.

Segir traðkað á réttindum sínum

Stefán hefur birt færslu á facebook þar sem hann segir: 

„Ég er með stjórnarskrávarinn rétt til að gæta eigna minna og reksturs og að fá að vera á heimili mínu í Grindavík ef ég kýs svo. Á þeim rétti hefur verið traðkað endurtekið og því er þetta mál.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert