Shokri Keryo neitar að hafa átt sök á skotárás í Úlfarsárdal í Reykjavík í nóvember. Er hann ákærður fyrir tilraun til manndráps.
Játaði hann aftur á móti öllum sjö ákæruliðum seinni ákærunnar sem snýr að sex umferðarlagabrotum og einu umferðar- og fíkniefnalagabroti.
Þingfesting í málinu fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Fyrri ákæran lýtur að tilraun til manndráps, eignaspjöllum og hættubroti aðfaranótt 2. nóvember 2023. Er hann sagður hafa skotið fjórum skotum í áttina að fjórum einstaklingum.
Ákærði hafi beint óþekktu skotvopni með 9 mm hlaupi í átt að þeim þar sem þeir stóðu utandyra við íbúðarhúsnæði, og hleypt af skotum. Eitt skotanna hafi farið inn um glugga hjá fjögurra manna fjölskyldu í íbúðarhúsnæðinu, sem er málinu að öllu óviðkomandi.
Segir í ákærunni að Shokri hafi með háttsemi sinni stofnað lífi og heilsu þeirra sem fyrir voru sem og íbúum hússins í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt.
Seinni ákæran á hendur honum lýtur að sex umferðarlagabrotum og einu umferðar- og fíkniefnalagabroti. Játaði Shokri sök í öllum ákæruliðum.
Gengst hann þar með við því að hafa ítrekað ekið án ökuréttinda og verið óhæfur til að stjórna bifreiðunum.
Í fimm tilfellum mældist efnið tetrahýdrókannabínól (THC) í blóði hans og í eitt skiptið hafði hann haft maríjúana í vörslu sinni.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir er settur héraðsdómari í málinu en Dagmar Ösp Vésteinsdóttir, er settur saksóknari. Leó Daðason er verjandi Shokri.
Einnig voru fjórir réttargæslumenn bótakrafa viðstaddir en þeirra á meðal er Gabríel Douane Boama, sem varð fyrir skoti í fót.