Gestir á báðum hótelum

Bláa lónið og varnargarðar í kringum svæðið.
Bláa lónið og varnargarðar í kringum svæðið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rýming á hótelum Bláa lónsins, Silica og Retreat gekk mjög vel nú í nótt eftir að tilkynnig barst um kvikuhlaup í Sundhnúkagígaröðinni. Þá sýndu gestir rýmingunni góðan skilning. Þetta segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá félaginu.

Gestir voru á báðum hótelunum og um tugur starfsmanna. Helga segir að gestir hafi farið af svæðinu bæði á eigin bílum sem og á rútum á vegum fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert