Gosið hefur ekki áhrif á flug

Icelandair segir að eldgos sem er hafið á Reykjanesskaga hafi hvorki áhrif á starfsemi Icelandair né Keflavíkurflugvallar að svo stöddu.

„Flugáætlun okkar stendur því óbreytt,“ segir í tilkynningu frá félaginu. 

„Öryggi farþega og starfsfólks okkar er ávallt í fyrsta sæti og allar ákvarðanir verða teknar með það að leiðarljósi. Við fylgjumst náið með stöðu mála og upplýsum farþega okkar tímanlega ef einhverjar breytingar verða á flugáætlun vegna eldgossins,“ segir enn fremur. 

Uppfært

Flugfélagið Play segir einnig að gosið hafi ekki áhrif á starfsemi félagsins. 

Nánari upplýsingar á vef Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert