Heitavatnslaust á Keflavíkurflugvelli

Gosmökkurinn frá Keflavíkurflugvelli.
Gosmökkurinn frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heitavatnslaust er á Keflavíkurflugvelli vegna hrauns sem flætt hefur yfir heitavatnsæð.

Þetta segir Guðjóni Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia. 

Takmörkuð áhrif á flugvöllinn eins og er

„Enn sem komið er hefur slíkt takmörkuð áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvelli en við fylgjumst vel með þróun mála og erum vel undirbúin ef grípa þarf til nauðsynlegra aðgerða, meðal annars til að bregðast við hugsanlegri kólnun í flugstöðinni af völdum heitavatnsleysis,“ segir Guðjón.

Að hans sögn eru flugfélög og flugþjónustufyrirtæki á vellinum vel upplýst um stöðu mála til að geta gripið til viðbragðsaðgerða í sinni þjónustu og á sínum rekstrarsvæðum á flugvellinum ef og þegar þörf verður á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert