Stefnir í að heitavatnslaust verði í kvöld

Útlit er fyrir að heitavatnslaust verði á Suðurnesjum milli níu …
Útlit er fyrir að heitavatnslaust verði á Suðurnesjum milli níu og tíu í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hratt gengur á varabirgðir heits vatns í miðlunartöknum á Suðurnesjum. Því má ætla að heitavatnslaust verði á Suðurnesjum milli níu og tíu í kvöld. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum sem send var út á bandaríska miðlinum Facebook í kvöld. 

Þar eru íbúar Suðurnesja hvattir til að fara eins sparlega með heitt vatn eins og hægt er. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert